laugardagur, 17. nóvember 2007

Búlgaría 5. dagur

Vöknuðum snemma til að fara í ferðalag með föður Veru. Ferðinni var heitið í bæ sem heitir sirka Kópernicia ef ég finn stafsetninguna á bænum breyti ég henni en þangað til verður þetta að duga. (Sjá lagfæringar í comments)Í þessum bæ hófst uppreisn Búlgaríu gegn Tyrkjum en sú uppreisn fór samt hrapalega en hvað um það bærinn er svona sögusafn, við skoðuðum þrjú hús að innan og nokkuð mörg að utan. Landslagið er ægifagurt þarna, bærinn stendur í 1000 m hæð og því var frekar kalt, dalirnir eru svo þröngir að sólin nær ekki að bræða snjóinn. Það er um það bil tveggja tíma ferð að fara í þennan bæ og því sáum við margt á leiðinni en það sem mér fannst dapurlegast að sjá voru öll yfirgefnu húsin en mikið af fólki á landsbyggðinni hefur flutt til Sofiu. Við vorum í tveimur bílum og bílstjórinn í mínum bíl var grískur guð eða allavega leit hann þannig út.

Um kvöldið fórum við út að borða í boði Þóru og Einars, við fórum á búlgarskan veitingastað og fengum mjög góðan mat, (tómatarnir í Búlgaríu eru sérlega góðir) og góða drykki mmmm......... Við vorum 14 sem borðuðum þarna saman en verðið var eins og tveir hefðu farið út að borða hér á skerinu.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bærinn heitir Koprivshtitsa