sunnudagur, 18. nóvember 2007

Búlgaría heimferð

Búgaría 6. dagur.

Tími til að versla! Ég fór með Þóru og Sibbu í handavinnubúð, við misstum okkur í garni og tvinna, þegar ég verð gömul þ.e. eldri en ég er núna þá flyt ég til Búlgaríu, garnið kostar nánast ekkert og tvinni enn minna og ef ég hef tölvuna mína þá er lífið fullkomið ég geri náttúrulega ráð fyrir að börnin mín fylgi með. Arna fór með Veru í skvísubúðir og feðgarnir fóru saman í tónlistarbúð og karlaverslanir samt ekki klámbúðir held ég, en hvað veit ég? Svo var komið að kveðjustund, Daði og Elena mamma Veru fylgdu okkur út á flugvöll og heim var svo haldið með fimm tíma stoppi í London.

Takk fyrir dásamlega daga allir saman.

2 ummæli:

Atli Freyr sagði...

Flott ferðasaga.

Atli Freyr sagði...

Hvernig væri annað blogg?