
Mikil rigning en við fjögur ákváðum nú samt að fara í göngu um bæinn en við vorum nú fljót að finna okkur regnhlífasala. Við gengum helstu götur í miðbænum og m.a. skoðuðum við dómkirkjuna en hún er afar stór og falleg með gullturnum. Við ráfuðum líka inn í undirgöng þar sem fundust rústir frá Rómverjum held ég og svo bara skoðuðum við bara mannlífið, það er ekkert þægilegt að fara í búðir fjögur saman þar sem flestar verslanirnar er bara gerðar fyrir tvo þeir eru ekkert að hafa búðirnar stórar það er meira að segja hægt að versla nærföt og gallabuxur í gegnum lúgu.
Um kvöldið var okkur boðið heim til Veru og Daða í mat það var mjög gaman að borða saman 15 í kringum venjulegt stofuborð nálægðin er mikil en ég var heppin að sitja við hliðina á Einari hann tekur ekki svo mikið pláss. Góður matur í góðra vina hópi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli