fimmtudagur, 6. mars 2008

3. dagur í Birmingham


29. febrúar

Við vöknuðum auðvitað snemma til að fara í morgunmatinn og síðan aftur á sýninguna. Við áttum eftir að skoða nokkra bása og byrjuðum því á því. Síðustu klukkutímana notuðum við svo til að skoða aftur það sem okkur fannst merkilegast og lærðum að búa til slím, það á örugglega eftir að koma að góðum notum að kunna það! Það voru nú ekki margir sem héldu út allan daginn á sýningunni við vorum innan við 10 sem fórum til baka með rútunni, 83 lögðu af stað. Þegar við komum örþreyttar á hótelið fórum við að flokka og henda og hvíla lúnar tær. Við gátum samt ekki verið lengi innan dyra og drifum okkur því bara út og í verslunarmiðstöðina og nú með betri árangri við versluðum handa elskulegum eiginmönnum okkar. Eins gott að þeir séu þakklátir við keyptum fjólublá, bleik og appelsínugul föt á þá.

Eftir hvíld á hótelinu var aftur arkað út og nú til að borða, við fundum indverskan stað í hverfi sem var eitthvað einkennilegt, alla vega sáum við frekar stórgerða konu eða karl í glæsidressi og léttklæddar ungar stúlkur þarna, en hvað með það okkur leist vel á staðinn, Maharaja heitir hann. Við fengum mjög góðan mat fyrst indverskt brauð með jógúrt og mintu, lauk og mangó chutney svo kjúkling í æðislegri karrýsósu, hrísgrjón og nanbrauð mmm... Eftir matinn fórum við heim á hótel, kíktum aðeins á barinn okkar og fórum svo að sofa.


þriðjudagur, 4. mars 2008

Birmingham 2. dagur


28. febrúar

Við vöknuðum snemma eða um hálfátta og drifum okkur í morgunamat sem var mjög góður og næringarríkur, alveg óþarfi að taka vítamín þennan daginn. Eftir matinn fórum við í smágöngu um nágrennið og tókum nokkrar myndir. Og svo var komið að stóru stundinni eða sýningunni sjálfri. Sýningin var í stórum sölum í sýningarhöll í Nec og þarna var allt sem hugurinn girnist í sambandi við kennslu. Við vorum þarna til klukkan 16:00, við settumst niður í um það bil 20 mínútur til að næra okkur annars vorum við allan tímann á göngu, við vorum orðnar ansi lúnar í höfðinu. Þegar heim var komið drifum við okkur í hárkollubúð og keyptum okkur bleikar hárkollur! Næst tóku við alvarlegri erindi þ.e. að kaupa brjóstarhöld á 4 glæsilegar konur. Þegar við vorum á heimleið ákváðum við að koma við í frekar óvistlegri vínbúð og kaupa okkur hvítvín og báðum um að hún yrði opnuð á staðnum en ekki var hægt að verða við þeim óskum svo við drifum okkur í næstu vínbúð til að kaupa tappatogara, María var viss um að við gætum ekki opnað með honum en ég var viss um hið gagnstæða, María vann! Hún dó nú samt ekki ráðalaus og hljóp fram á gang þegar hún heyrði í karlmanni og minnstu munaði að ég hlypi á eftir henni með bleika hárkollu á höfðinu. Klukkan 19:00 var boðið upp á léttar veitingar á hótelinu. Við fórum svo aftur út og núna til að borða á ítölskum veitingastað. Eftir að heim var komið var farið að flokka bæklinga og drekka hvítvín þangað til við lognuðumst útaf.

Veður: Þurrt og skýað

Birmingham 1. dagur


27. febrúar

Í hálku og leiðindaveðri ókum við sem næsti bíll á undan Maríu út á flugvöll. Eftir erfiða kveðjustund á flugvellinum drifum við okkur inn í fríhöfnina og ákváðum að drekkja sorgum okkar í hvítvíni. Flugið til London var mjög ljúft, ég leysti sudokur og María lærði, það gerir hver það sem hann gerir best.

Við fórum svo með rútu frá London til Birmingham. Hótelið sem við dvöldum á heitir Holiday Inn og er ágætishótel við vorum á 7undu hæð eða kannski í 7unda himni. Ég var ekki á skrá hjá hótelinu og var því bara sem x 2 hjá Maríu. Eftir að við vorum búnar að koma okkur fyrir drifum við okkur út og upp í Bull ring til að versla, við erum greinilega svolítið líkar í búðarrápi og þeir sem þekkja mig vita hvað það þýðir, en við keyptum nú samt sokka. Fljótlega fórum við því að leita matsölustað og eftir smá spjall við nokkra vegfarendur fundum við þennan fína stað La Roughe og fengum okkur hvítvín og kjúkling með fíflablöðum, belgbaunum og kartöflum. Þreyttar og ánægðar fórum við heim á hótel, komum okkur vel fyrir á Food and fun barnum okkar, drukkum smá grand og skriðum svo upp í rúm ég var áfram í sudokum en María lá í tískublöðunum. Sofnuðum og sváfum þar til við vöknuðum.

Veður: skýað og þurrt 8 stiga hiti.

sunnudagur, 18. nóvember 2007

Búlgaría heimferð

Búgaría 6. dagur.

Tími til að versla! Ég fór með Þóru og Sibbu í handavinnubúð, við misstum okkur í garni og tvinna, þegar ég verð gömul þ.e. eldri en ég er núna þá flyt ég til Búlgaríu, garnið kostar nánast ekkert og tvinni enn minna og ef ég hef tölvuna mína þá er lífið fullkomið ég geri náttúrulega ráð fyrir að börnin mín fylgi með. Arna fór með Veru í skvísubúðir og feðgarnir fóru saman í tónlistarbúð og karlaverslanir samt ekki klámbúðir held ég, en hvað veit ég? Svo var komið að kveðjustund, Daði og Elena mamma Veru fylgdu okkur út á flugvöll og heim var svo haldið með fimm tíma stoppi í London.

Takk fyrir dásamlega daga allir saman.

laugardagur, 17. nóvember 2007

Búlgaría 5. dagur

Vöknuðum snemma til að fara í ferðalag með föður Veru. Ferðinni var heitið í bæ sem heitir sirka Kópernicia ef ég finn stafsetninguna á bænum breyti ég henni en þangað til verður þetta að duga. (Sjá lagfæringar í comments)Í þessum bæ hófst uppreisn Búlgaríu gegn Tyrkjum en sú uppreisn fór samt hrapalega en hvað um það bærinn er svona sögusafn, við skoðuðum þrjú hús að innan og nokkuð mörg að utan. Landslagið er ægifagurt þarna, bærinn stendur í 1000 m hæð og því var frekar kalt, dalirnir eru svo þröngir að sólin nær ekki að bræða snjóinn. Það er um það bil tveggja tíma ferð að fara í þennan bæ og því sáum við margt á leiðinni en það sem mér fannst dapurlegast að sjá voru öll yfirgefnu húsin en mikið af fólki á landsbyggðinni hefur flutt til Sofiu. Við vorum í tveimur bílum og bílstjórinn í mínum bíl var grískur guð eða allavega leit hann þannig út.

Um kvöldið fórum við út að borða í boði Þóru og Einars, við fórum á búlgarskan veitingastað og fengum mjög góðan mat, (tómatarnir í Búlgaríu eru sérlega góðir) og góða drykki mmmm......... Við vorum 14 sem borðuðum þarna saman en verðið var eins og tveir hefðu farið út að borða hér á skerinu.

Búlgaría 4. dagur.


Mikil rigning en við fjögur ákváðum nú samt að fara í göngu um bæinn en við vorum nú fljót að finna okkur regnhlífasala. Við gengum helstu götur í miðbænum og m.a. skoðuðum við dómkirkjuna en hún er afar stór og falleg með gullturnum. Við ráfuðum líka inn í undirgöng þar sem fundust rústir frá Rómverjum held ég og svo bara skoðuðum við bara mannlífið, það er ekkert þægilegt að fara í búðir fjögur saman þar sem flestar verslanirnar er bara gerðar fyrir tvo þeir eru ekkert að hafa búðirnar stórar það er meira að segja hægt að versla nærföt og gallabuxur í gegnum lúgu.

Um kvöldið var okkur boðið heim til Veru og Daða í mat það var mjög gaman að borða saman 15 í kringum venjulegt stofuborð nálægðin er mikil en ég var heppin að sitja við hliðina á Einari hann tekur ekki svo mikið pláss. Góður matur í góðra vina hópi.

1. 2. og 3. dagur í Búlgaríu

Búlgaría 1. dagur.

Eftir kennslu á föstudeginum fórum við út á flugvöll og hittum Svölu (klaufabárð) og Stein (skoppara). Flugið til London var mjög ljúft og í London var bara ágætisveður. Við gistum á flugvallarhóteli, Holiday Inn, að sjálfsögðu fengum við okkur að borða og ég verð nú að segja að Bretinn er nú ekkert sérstaklega góður á bak við eldavélina ( Steinn við skuldum þér ennþá eitthvað síðan þarna).


Búlgaría 2. dagur.

Eldsnemma morguns var farið út á flugvöll og morgunverður snæddur, Steini finnst gott að fá súkkulaðibollur í morgunmat held ég, og síðan lá leiðin til Sofíu þar tóku á móti okkur frændi Veru og vinur og svo auðvitað Daði. Eftir smáviðveru í anddyri hótelsins var farið með okkur skvísurnar (ég aðalskvísa, Svala soldið aðal og Arna smá aðal) á snyrtistofu þar voru neglur klipptar, pússaðar og málaðar og snyrtifræðingurinn ussaði og sveiaði yfir hvers konar neglur Íslendingarnir hefðu en það er greinilegt að snyrting er í forgangi hjá Búlgörum. Við fengum líka slakandi nudd í nuddstól. Eftir góðan kvölverð og engan Mojito L spjölluðum við og fórum svo að sofa.


Búlgaría 3. dagur. Brúðkaupsdagurinn 11.11.

Upp var runninn brúðkaupsdagur, ákaflega skýr og fagur..... góður dagur til að ganga í hjónaband, veðrið var stillt, þurrt en svolítið kalt. Við byrjuðum daginn á því að skoða tvær kirkjur önnur niðurgrafin og hin var risastór og mikið sót inni í henni. Eftir skreytingar á eigin skrokkum og kóræfingar var haldið heim til Veru og foreldra þar fylgdumst við með því hvernig Daði og svaramaður hans reyndu að fá brúðina til að samþykkja giftinguna, Daði lofaði gulli og grænum skógum þ.e. Visa kortinu og eftir japl, jaml og fuður ákvað Vera að þetta væri tilraunarinnar virði. Eftir að mamma Veru var búin að baða hana á leið út úr húsi var gengið í nærliggjandi garð og teknar myndir og svo var haldið til athafnar. Þessi athöfn var borgaraleg en samt mjög hátíðleg Daði fór með sitt heit á búlgörsku og Vera á lýtalausri íslensku. Allir gestir fengu síðan súkkulaði en áður en að því kom þurftu allir að óska brúðhjónum, foreldrum þeirra, svaramönnum og brúðarmeyju til hamingu enda verða allir að leggja á sig erfiði til að fá sætindi. Eftir þessa athöfn var haldið til kirkju og þar fór fram önnur athöfn sem var öll sungin og öll atriði gerð þrisvar sinnum, það sem mér þótti merkilegast þar var að brúðhjónin voru bæði með alvöru kórónur. En nú var kominn tími til veisluhalda og það var nú engin smáveisla alls konar búlgarskir siðir og góður matur en maturinn í Búlgaríu er einstaklega góður og nú liggjum við Elmar í uppskriftum. Í veislunni kom í ljós að Daði og Vera koma til með að eignast tvíbura, stelpu og strák, þau munu ráða svipað mikið en Vera upplýsti veislugesti um það að vaska upp á Íslandi væri karlmannsverk. Við Íslendingarnir sungum nokkur lög við góðar undirtektir og loforð um nokkur stig í næsta júróvision. Arna vakti mikla athygli í íslenska búningnum það var endalaust verið að taka af henni myndir. Sá sem hélt uppi mesta stuðinu hoppaði mikið og ekki orð um það meir.