sunnudagur, 9. mars 2008

London seinni dagur.


2. mars

Eftir góðan morgunmat fórum við út á göngu, við byrjuðum á Marble Arch, gengum yfir suð-austur horn Hyde Park , skoðuðum Speakers Corner og héldum svo áfram niður í Kensington- hverfið. Svo fórum við í gegnum Green Park að Buckinghamhöllinni og vorum svo heppnar að það voru vaktaskipti hjá lífvörðum drottningar. Þaðan lá leiðin svo í St. James Park, þar var allt í blóma, bæði tré og blóm. Kíktum í nokkrar búðir á Regent street og fórum svo í Soho þar fór María með mig í flottustu verslun sem ég hef komið í hún heitir Liberti og er í eldgömlu húsi og ekki skemmdi það fyrir að það var fullt af handavinnu. Maríu fannst ómöglegt að ég færi frá London án þess að smakka fish and chips þannig að í nágrenni við Carnaby street var stefnan tekin á ekta breskan matsölustað og ég fékk heilt þorskflak með roði og öllu saman mmm….. Eftir matinn gengum við upp Oxford og nú utandyra og upp á hótel til að ná í farangurinn og fara út á flugvöll. Flugferðin heim gekk vel, smáhristingur. Ég er mjög ánægð með þessa ferð og þá sérstaklega ánægð með ferðafélagann ég vona að hún sé það líka. Takk fyrir þetta María.

Komnar til London


1. mars.

Eftir staðgóðan morgunmat var auðvitað farið út í göngu, ekki gátum við stirðnað upp, við kíktum á torg við hótelið og örkuðum svo til að sjá afar merkilegt hús sem heitir The Mailbox (María tók mjög athyglisverða mynd þar). Eftir smábið eftir rútunni var haldið til London í fallegu og björtu veðri. Mikil umferð var í London og við vorum ekki komnar á hótelið fyrr en um þrjú. Hótelið heitir Chumberland, lobbíið er mjög stórt og með miklum ljósum og verkamönnum í mismunandi stellingum.

Þegar við vorum búnar að koma okkur fyrir ( og átta okkur á því að ekki var hægt að loka baðherberginu) drifum við okkur út á göngu. Við gengum niður Oxford að Oxford Circus í mikilli mannmergð, kíktum aðeins í John Lewis og keyptum handavinnu. Þegar við ákváðum að labba til baka datt Maríu það snjallræði í hug að labba Oxford innandyra við fórum sem sagt inn í búðirnar frá hliðargötu, gengum í gegnum ilmvatnsdeildir og út aftur í næstu hliðargötu og þetta var hægt næstum alla leið á hótelið!

Eftir ítalskan kvöldmat, smá stopp á netkaffi og hvíld drifum við okkur á barinn og fengum okkur Mohito sem við tókum svo með okkur inn á herbergi háttuðum okkur fórum undir sæng, kveiktum á flatskjánum og horfðum á Sense and sensibility með Mohito í annarri og súkkulaði í hinni, er hægt að hafa það huggulegra?

fimmtudagur, 6. mars 2008

3. dagur í Birmingham


29. febrúar

Við vöknuðum auðvitað snemma til að fara í morgunmatinn og síðan aftur á sýninguna. Við áttum eftir að skoða nokkra bása og byrjuðum því á því. Síðustu klukkutímana notuðum við svo til að skoða aftur það sem okkur fannst merkilegast og lærðum að búa til slím, það á örugglega eftir að koma að góðum notum að kunna það! Það voru nú ekki margir sem héldu út allan daginn á sýningunni við vorum innan við 10 sem fórum til baka með rútunni, 83 lögðu af stað. Þegar við komum örþreyttar á hótelið fórum við að flokka og henda og hvíla lúnar tær. Við gátum samt ekki verið lengi innan dyra og drifum okkur því bara út og í verslunarmiðstöðina og nú með betri árangri við versluðum handa elskulegum eiginmönnum okkar. Eins gott að þeir séu þakklátir við keyptum fjólublá, bleik og appelsínugul föt á þá.

Eftir hvíld á hótelinu var aftur arkað út og nú til að borða, við fundum indverskan stað í hverfi sem var eitthvað einkennilegt, alla vega sáum við frekar stórgerða konu eða karl í glæsidressi og léttklæddar ungar stúlkur þarna, en hvað með það okkur leist vel á staðinn, Maharaja heitir hann. Við fengum mjög góðan mat fyrst indverskt brauð með jógúrt og mintu, lauk og mangó chutney svo kjúkling í æðislegri karrýsósu, hrísgrjón og nanbrauð mmm... Eftir matinn fórum við heim á hótel, kíktum aðeins á barinn okkar og fórum svo að sofa.


þriðjudagur, 4. mars 2008

Birmingham 2. dagur


28. febrúar

Við vöknuðum snemma eða um hálfátta og drifum okkur í morgunamat sem var mjög góður og næringarríkur, alveg óþarfi að taka vítamín þennan daginn. Eftir matinn fórum við í smágöngu um nágrennið og tókum nokkrar myndir. Og svo var komið að stóru stundinni eða sýningunni sjálfri. Sýningin var í stórum sölum í sýningarhöll í Nec og þarna var allt sem hugurinn girnist í sambandi við kennslu. Við vorum þarna til klukkan 16:00, við settumst niður í um það bil 20 mínútur til að næra okkur annars vorum við allan tímann á göngu, við vorum orðnar ansi lúnar í höfðinu. Þegar heim var komið drifum við okkur í hárkollubúð og keyptum okkur bleikar hárkollur! Næst tóku við alvarlegri erindi þ.e. að kaupa brjóstarhöld á 4 glæsilegar konur. Þegar við vorum á heimleið ákváðum við að koma við í frekar óvistlegri vínbúð og kaupa okkur hvítvín og báðum um að hún yrði opnuð á staðnum en ekki var hægt að verða við þeim óskum svo við drifum okkur í næstu vínbúð til að kaupa tappatogara, María var viss um að við gætum ekki opnað með honum en ég var viss um hið gagnstæða, María vann! Hún dó nú samt ekki ráðalaus og hljóp fram á gang þegar hún heyrði í karlmanni og minnstu munaði að ég hlypi á eftir henni með bleika hárkollu á höfðinu. Klukkan 19:00 var boðið upp á léttar veitingar á hótelinu. Við fórum svo aftur út og núna til að borða á ítölskum veitingastað. Eftir að heim var komið var farið að flokka bæklinga og drekka hvítvín þangað til við lognuðumst útaf.

Veður: Þurrt og skýað

Birmingham 1. dagur


27. febrúar

Í hálku og leiðindaveðri ókum við sem næsti bíll á undan Maríu út á flugvöll. Eftir erfiða kveðjustund á flugvellinum drifum við okkur inn í fríhöfnina og ákváðum að drekkja sorgum okkar í hvítvíni. Flugið til London var mjög ljúft, ég leysti sudokur og María lærði, það gerir hver það sem hann gerir best.

Við fórum svo með rútu frá London til Birmingham. Hótelið sem við dvöldum á heitir Holiday Inn og er ágætishótel við vorum á 7undu hæð eða kannski í 7unda himni. Ég var ekki á skrá hjá hótelinu og var því bara sem x 2 hjá Maríu. Eftir að við vorum búnar að koma okkur fyrir drifum við okkur út og upp í Bull ring til að versla, við erum greinilega svolítið líkar í búðarrápi og þeir sem þekkja mig vita hvað það þýðir, en við keyptum nú samt sokka. Fljótlega fórum við því að leita matsölustað og eftir smá spjall við nokkra vegfarendur fundum við þennan fína stað La Roughe og fengum okkur hvítvín og kjúkling með fíflablöðum, belgbaunum og kartöflum. Þreyttar og ánægðar fórum við heim á hótel, komum okkur vel fyrir á Food and fun barnum okkar, drukkum smá grand og skriðum svo upp í rúm ég var áfram í sudokum en María lá í tískublöðunum. Sofnuðum og sváfum þar til við vöknuðum.

Veður: skýað og þurrt 8 stiga hiti.